Flugeldar

Jón Þór | 27. December 2009

Vildi bara minna fólk á að versla flugelda af Björgunarsveitunum.

Annars er þessi linkur helvíti góður.

Skrifad ur ipod

Jón Þór | 20. December 2009

Tetra we skrifad ur iPod touch. 100 coolpoints.

Google

Jón Þór | 19. December 2009

Á hverju ári er Google leitarvélin spurð fleiri spurninga en menn eru á jörðinni.

Hverjum var þessum spurningum beint að áður?

Íslenskir fjölmiðlar

Jón Þór | 18. December 2009

Og þetta er ástæðan af hverju RÚV og DR er nú fyrsta síðan hjá mér til að lesa fréttir.

Baldur í Viðskiptablaðinu og Mogganum

Viðskiptablaðið

Morgunblaðið

Morgunblaðið

Það snjóar í köben

Jón Þór | 15. December 2009

Þessum ekta jólasnjó.

Ef þið vitið hvar er hægt að kaupa hreindýrakjöt í köben endilega látið mig vita.

Ágætis helgi

Jón Þór | 13. December 2009

Við fórum í mjög undarlegt jólaglögg  á föstudaginn eftir að hafa rölt um bæinn. Umræðuefnin voru meðal annars ryksugur, orkunotkun og stríð. Besta skemmtun samt sem áður og entist mun lengur en áætlað var.

Við tókum svo aftur bæinn á laugardag. Við skoðuðum básana á ráðhústorginu sem settir voru upp í kringum Cop fundinn. Tívolíið var svo fullt af fólki og jólastemmingu. Kósý helgi.

Nokkrir fecebook brandarar til að lengja lífið.

Skortur á rannsóknarefnum í háskólum?

Jón Þór | 10. December 2009

Þættirnir um Tomma lest og vini hans á Sótor-eyju eru sagðir predika hægri sinnuð og íhaldssöm viðhorf ofan í börn og eru þar að auki niðrandi í garð kvenna. Þetta er niðurstaða prófessors í stjórnmálafræði sem gert hefur ítarlega rannsókn á þáttunum.

Tommi lest: Áróðursmálaráðherra íhaldsins

Tommi lest: Áróðursmálaráðherra íhaldsins

Það má ekkert í dag. Annað hvort er verið að heilaþvo fólk eða tala niður kvenfólk.

Sem minnir mig á… Ég sá skilti uppí skóla um daginn sem var eitthvað á þessa leið

“A woman invented the windshield wiper in one night. Imagine what a group of women can do in one night!”

Var þetta virkilega það besta sem þær gátu fundið, rúðuþurrkur? Hvað með pencilin, hjólið, rafmagn og internetið…. you get the idea…

Síðasta kvöldmáltíðin?

Jón Þór | 9. December 2009

Ég hef gengið í gegnum margar prófalotur á námsferli mínum. 10-11 próf hverja önn í Verzlunarskólanum. Þar næst fimm próf á önn við verkfræðideild HÍ og svo nú 3-5 próf á önn við verkfræðideild DTU. Á síðustu 9 árum má því segja að maí og desember hafi flogið framhjá manni, yfirleitt lærandi frá morgni til kvölds.

Það má þó gera ráð fyrir að þetta fari að breytast. Ég sé fram á síðasta alvöru prófið mitt – í bili – á fimmtudag í hljóðfræði bygginga. Þá eru frátalin þægilegri próf eins og dönskuprófin.

Það er hinsvegar ennþá fullt af spennandi námsmöguleikum þarna úti sem hægt er að nýta sér með vinnu og ég mun væntanlega einhverntíman á lífsleiðinni bæta við mig námi eftir M.Sc. ritgerð.

Fárið byrjað

Jón Þór | 7. December 2009

Limmosíur fara í röðum frá flugvellinum. T’iu þúsund lögreglumenn á vakt. Bærinn skreyttur með jóla- og klima skreytingum. Allir vilja bita úr kökunni, auglýsa sig sem græna og vistvæna.

Fárið er byrjað. Ráðstefnan er hafin. Lobby-istar sem hafa náð að hagnast á málefninu eru í essinu sínu.

Ætli það verði nokkuð svo jólalegt að labba um bæinn um næstu helgi, við sjáum til.

Annars fór helgin í lítið annað en lærdóm, rétt eins og þessi vika. Próf á miðvikudag og fimmtudag.

Inflation-indexed bonds

Jón Þór | 4. December 2009

“They are mainly issued by governments signalling they are willing to maintain a low inflation level. They are more developed in the UK where they represent over 20% of outstanding government bonds. In the USA they represent only 7%  of the issued government dept in 1999. In France there were only three treasury inflation-indexed bonds in 2001″4 dagar til jóla